Talsvert vatnstjón í Holtagörðum

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í nótt vegna vatnsleka á efri hæð Holtagarða en þar hafði vatnsúðunarkerfi farið af stað með þeim afleiðingum að mikið vatn flæddi um húsnæðið og lak á milli hæða, alls um tvö þúsund fermetra svæði. 

Að sögn varðstjóra tók um þrjár klukkustundir að hreinsa upp en vatnsúðunarkerfi Golfklúbbsins á annarri hæðinni fór í gang. Töluverðar skemmdir urðu á húsnæði klúbbsins og eins lak vatn á neðri hæð hússins en væntanlega er tjónið minna þar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert