Fyrsta tilfelli kórónuveiru greinist á Íslandi

Landspítalinn hefur tekið í notkun gámaeiningu við hlið bráðamóttökunnar í …
Landspítalinn hefur tekið í notkun gámaeiningu við hlið bráðamóttökunnar í Fossvogi, ætlaða þeim sem grunaðir eru um að vera smitaðir af kórónuveirunni COVID-19. Fyrsta smitið hefur nú fengist staðfest hér á landi. mbl.is/Árni Sæberg

Fyrsta tilfelli COVID-19-kórónuveiru greinist á Íslandi. Hættustig almannavarna hefur verið virkjað.

Íslenskur karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið færður í einangrun á Landspítala eftir að sýni úr honum reyndist jákvætt fyrir nýrri kórónuveiru. Þetta kemur fram í tilkynningu frá embætti landlæknis. Maðurinn er ekki alvarlega veikur en sýnir dæmigerð einkenni COVID-19-sjúkdóms, það er hósta, hita og beinverki.

Sýnataka og greining á veiru- og sýklafræðideild Landspítala staðfesti laust eftir kl. 13:00 í dag að maðurinn væri smitaður af COVID-19-kórónuveiru.

Í ljósi þessa mun ríkislögreglustjóri í samráði við sóttvarnalækni virkja hættustig almannavarna. Er þetta gert bæði vegna þess að ekkert lát er á hópsýkingum af völdum veirunnar ytra, þá sérstaklega í Evrópu, og að fyrsta tilfellið hefur nú verið staðfest hér á landi.

Maðurinn sem greindist var nýverið staddur á Norður-Ítalíu utan skilgreinds hættusvæðis fyrir veiruna. Unnið er að rakningu smitleiða en markmið þeirrar vinnu er að varpa ljósi á hverjir gætu verið berskjaldaðir vegna þessa staðfesta smits.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og sóttvarnalæknir boða til blaðamannafundar í dag í samhæfingarmiðstöð almannavarna að Skógarhlíð 14, klukkan 16:00. Á fundinum munu Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, sitja fyrir svörum ásamt Ölmu D. Möller landlækni og Guðlaugu Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóra flæðisviðs Landspítala.

Einstaklingar sem finna fyrir veikindum og hafa mögulega verið berskjaldaðir fyrir smiti vegna t.d. ferðalaga eru hvattir til að hringja í 1700 (fyrir erlend símanúmer: +354 544-4113) til að fá leiðbeiningar. Þeir sem hafa verið í nánu samneyti við einstaklinga með staðfesta eða líklega sýkingu verða settir í sóttkví og hið sama á við um þá sem ferðast hafa á undanförnum dögum til skilgreindra áhættusvæða. Ítarlegar upplýsingar um hina nýju kórónuveiru er að finna á landlaeknir.is og jafnframt upplýsingar um skilgreind áhættusvæði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert