Greipur Íslandsmeistari í uppistandi

Ingi Björn Róbertsson, Greipur Hjaltason og Anna Lilja Björnsdóttir.
Ingi Björn Róbertsson, Greipur Hjaltason og Anna Lilja Björnsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Greipur Hjaltason er Íslandsmeistari í uppistandi en tíu uppistandarar kepptu um titilinn í gærkvöldi í Háskólabíói.

Í öðru sæti varð Anna Lilja Björnsdóttir og í þriðja sæti Iddi Biddi eða Ingi Björn Róbertsson.

Greipur hlaut 500.000 krónur í fyrstu verðlaun og titilinn „Íslandsmeistari í uppistandi 2020“, að því er kemur fram í tilkynningu.

Greipur byrjaði að koma fram á „open mic“-kvöldum hjá uppistand.is fyrir fimm árum og kom svo fram á Gauknum í gegnum Goldengang Comedy á hverjum mánudegi í fjögur ár. „Áhuginn kom bara því ég vissi að ég gæti þetta og vantaði eitthvað til að stefna að. Að koma fram í fullum sal af fólki er að sjálfsögðu gaman en „craftið“ sjálft, þ.e.a.s. að púsla orðunum saman og búa til bita, brandara eða bara súra setningu sem er fyndin, það er það sem ég elska,“ segir Greipur í tilkynningunni.

Á meðal þekktra skemmtikrafta í salnum voru Jón Gnarr og Ari Eldjárn. Kynnar keppninnar voru þau Kjartan Atli Kjartansson og Júlíana Sara Gunnarsdóttir.

Dómefndina skipuðu þau Logi Bergmann Eiðsson, Fannar Sveinsson, Gummi Ben, Pálmi Guðmunds hjá Símanum, Steinunn Camilla Sigurðardóttir hjá umboðsskrifstofunni Iceland Sync og Ragna Gestsdóttir hjá Mannlífi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert