Hellisheiði lokuð um miðjan daginn

Vegfarendum er bent á að fara Þrengslin.
Vegfarendum er bent á að fara Þrengslin. mbl.is/RAX

Hellisheiði á Suðurlandsvegi verður lokað klukkan tvö í báðar áttir vegna vinnu við snjóruðningstæki sem valt út af veginum í nótt.

Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi á Facebook.

Þar segir að vinnan taki um tvær til þrjár klukkustundir. Vegfarendum er bent á hjáleið um Þrengslaveg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert