Öxnadalsheiði lokað eftir umferðaróhapp

Öxnadalsheiði. Mynd úr safni.
Öxnadalsheiði. Mynd úr safni. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Veginum um Öxnadalsheiði hefur verið lokað um óákveðinn tíma vegna umferðaróhapps, en tveir bílar rákust saman á heiðinni á þriðja tímanum.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri voru alls sjö í bílunum tveimur og eru meiðsli fólks ekki talin alvarleg.

Dráttarbíll er á leiðinni á vettvang og verður umferð opnuð um heiðina þegar hann hefur lokið störfum sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert