Skipa stýrihóp vegna kórónuveirunnar

Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að setja á …
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að setja á fót sérstakan stýrihóp sjö ráðuneytisstjóra um samfélagsleg og hagræn viðbrögð við COVID-19-veirunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sérstakur stýrihópur sjö ráðuneytisstjóra hefur verið settur á fót að frumkvæði ríkisstjórnarinnar. Viðfangsefni hópsins eru samfélagsleg og hagræn viðbrögð við kórónuveirunni, COVID-19. 

„Útbreiðsla Covid-19-veirunnar hefur víðtæk samfélagsleg og efnahagsleg áhrif um allan heim sem birtist m.a. í lækkun hlutabréfa í kauphöllum og samdrætti í ferðaþjónustu,“ segir m.a. í tilkynningu frá Stjórnarráðinu en ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að setja á fót sérstakan stýrihóp sjö ráðuneytisstjóra. 

Stjórnvöld fylgjast náið með framvindu mála og leggja áherslu á að styrkja samhæfingu stjórnvalda þannig að unnt verði að grípa til viðeigandi ráðstafana hverju sinni.

Stýrihópurinn mun leggja mat á stöðuna og nauðsynleg samfélagsleg og efnahagsleg viðbrögð á hverjum tíma.

Hópinn skipa:

  • Bryndís Hlöðversdóttir, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytis
  • Ásta Valdimarsdóttir, ráðuneytisstjóri heilbrigðisráðuneytis
  • Gissur Pétursson, ráðuneytisstjóri félags- og barnamálaráðuneytis
  • Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri fjármála- og efnahagsráðuneytis
  • Haukur Guðmundsson, ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytis
  • Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri atvinnu- og nýsköpunarráðuneytis
  • Sturla Sigurjónsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytis
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert