Skoða göng í Öxnadalsheiði

Á Öxnadalsheiði.
Á Öxnadalsheiði. mbl.is/Helgi Bjarnason

Vegagerðin vekur athygli umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á því að til að tryggja öruggari vetrarsamgöngur milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar megi grafa göng undir Öxnadalsheiði.

Slík göng með gangamunna í svipaðri hæð og rætt er um í tillögu um Tröllaskagagöng gætu orðið um 11 km löng og kostað helmingi minna en Tröllaskagagöng.

Ábending Vegagerðarinnar kemur fram í stuttri umsögn um þingsályktunartillögu varaþingmannanna Stefáns Vagns Stefánssonar og Bjarna Jónssonar um að hafin verði vinna við rannsóknir, frumhönnun og mat á hagkvæmni við gerð jarðganga á Tröllaskaga.

Tröllaskagagöng hafa lengi verið í umræðunni. Einkum hefur verið rætt um göng frá Hofsdal yfir í Barkárdal en einnig tvenn jarðgöng sem færu fyrst úr Hörgárdal yfir í Skíðadal og þaðan vestur í Kolbeinsdal í Skagafirði. Rökstuðningur fyrir göngunum er að fjallvegurinn um Öxnadalsheiði geti verið verulegur farartálmi yfir vetrarmánuðina og að göngin myndu stytta leiðina úr Skagafirði til Akureyrar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert