Frekari verkföll hjá Eflingarfólki samþykkt

Frá fundi Eflingar og borgarinnar 28. janúar. Nú hefur Eflingarfólk …
Frá fundi Eflingar og borgarinnar 28. janúar. Nú hefur Eflingarfólk sem starfar í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni samþykkt að fara í verkföll frá 9. mars og sömuleiðis félagsmenn Eflingar hjá sjálfstætt starfandi skólum, en hjá þeim er um samúðarverkfall að ræða. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Um 90% félagsmanna Eflingar sem greiddu atkvæði um verkföll hjá einkareknum skólum og hjá sveitarfélögum öðrum en Reykjavíkurborg hafa samþykkt vinnustöðvanir í atkvæðagreiðslu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu, en vinnustöðvanirnar munu að óbreyttu hefjast 9. mars.

Kjörsókn hjá félagsmönnum hjá sjálfstætt starfandi skólum var 52%, en þar greiddu 152 af 291 félagsmanni á kjörskrá atkvæði. 137 eða 90% voru samþykkir verkfallsboðun, 14 eða 9% mótfallnir og 1 eða 0,66% tóku ekki afstöðu. Um er að ræða samúðarverkfall hjá þessum starfsmönnum.

Kjörsókn hjá félagsmönnum hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Hveragerðisbæ og Sveitarfélaginu Ölfusi var 48%, en þar greiddu 131 af 274 félagsmanni á kjörskrá atkvæði. 114 eða 87% voru samþykkir verkfallsboðun, 14 eða 11% mótfallnir og 3 eða 2% tóku ekki afstöðu.

Af þeim sem tóku afstöðu voru 89% félagsmanna hjá sveitarfélögum hlynntir verkfallsboðun og 91% félagsmanna hjá einkareknu skólunum, samkvæmt tilkynningu Eflingar.

„Þessar niðurstöður sýna hve mikinn vilja fólk hefur til að leggja lóð sitt á vogarskálar í baráttunni fyrir bættum kjörum. Þetta eru hópar sem eru í sambærilegum störfum og félagsmenn okkar í verkfalli gagnvart Reykjavíkurborg. Sömu óbærilega illa launuðu störfin, við óboðlegt álag og aðstæður. Sveitarfélögin og stofnanirnar þar sem börnin okkar og aldraðir foreldrar dvelja eru stærstu láglaunavinnustaðir landsins. Tími breytinga er kominn, engin heiðarleg manneskja getur neitað því lengur,” er haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur formanni Eflingar í tilkynningu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert