Hafnarstjóri hefur sagt starfinu lausu

Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna.
Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna.

Á fundi stjórnar Faxaflóahafna sf. í gær var lagt fram bréf Gísla Gíslasonar hafnarstjóra þar sem hann segir starfi sínu lausu.

„Undirritaður hefur gegnt starfi hafnarstjóra í á fimmtánda ár og tímans gangur sá að skynsamlegt sé að huga að starfslokum. Því segi ég undirritaður upp störfum með umsömdum uppsagnarfresti sem er sex mánuðir. Samkvæmt því verða starfslok í lok ágústmánaðar,“ segir Gísli í bréfinu.

Hafnarstjórnin bókaði að vegna fyrirhugaðra starfsloka hafnarstjóra væri formanni falið að leggja fram tillögu að auglýsingar- og ráðningarferli á næsta fundi stjórnar.

„Ég verð 65 ára gamall á árinu og því góður tími til að taka lokasprettinn á vinnumarkaðnum,“ segir Gísli aðspurður í Morgunblaðinu í dag. Hann sé búinn að vera í þessu daglega ati í 35 ár og því kominn tími til að hægja aðeins á.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert