Þrjú smit til viðbótar staðfest — alls orðin 14

Frá blaðamannafundi í samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð í dag.
Frá blaðamannafundi í samhæfingarstöðinni í Skógarhlíð í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í dag hafa alls fimm tilfelli af COVID-19-sjúkdómnum verið greind á sýkla- og veirufræðideild Landspítala. Samtals hafa því fjórtán einstaklingar á fimmtugs- og sextugsaldri verið greindir með smit af völdum kórónuveirunnar hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samhæfingarstöð almannavarna.

Fólkið hefur allt smitast erlendis og er ekki alvarlega veikt. Ellefu komu í flugi frá Veróna á Norður-Ítalíu og þrír í flugi frá München í Þýskalandi og voru þeir að koma frá Austurríki.

Fólkið er nú í einangrun. Sá sem fyrst smitaðist er útskrifaður af Landspítala og er nú heima í sóttkví.

Búið að rannsaka um 180 sýni

Smitrannsóknateymi almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra, lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og sóttvarnalæknis er að störfum og hafa þau samtals haft samband við um 300 einstaklinga síðastliðna daga.

Í dag voru 29 sýni rannsökuð á Landspítala, þar af reyndust fimm fyrrnefnd tilfelli jákvæð. Frá upphafi hafa um 180 sýni verið rannsökuð. Í kringum 300 manns eru í sóttkví á landinu öllu.

80% fá væg einkenni

Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómalækninga á Landspítala, fjallaði um kórónuveiruna, einkenni sjúkdómsins sem hún veldur og stöðuna í dag á blaðamannafundi sem fram fór í samhæfingarstöðinni í dag.

Már hvatti almenning til að fylgja almennum leiðbeiningum sóttvarnalæknis. Hann lýsti einkennum kórónuveirunnar í samanburði við hina árlegu inflúensu. Einkennin eru ekki ólík en það er til bóluefni og meðferðarmöguleikar þegar kemur að inflúensu.

Kórónuveiran er ný veira og beita þarf einangrun og sóttkví þar til búið verður að þróa bóluefni. Um 80% þeirra sem greinast með COVID-19, sjúkdóminn sem veiran veldur, fá væg einkenni. Um 15 prósent verða veik með hita og einkenni hliðstæð inflúensu en um 5% veikjast alvarlega. Veiran getur lifað á yfirborði hluta í 1-9 daga og er því mikilvægt að gæta vel að almennu hreinlæti.

Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, útskýrði langtímaviðbrögð stjórnvalda við COVID-19 á fundinum í dag. Hann sagði nauðsynlegt að horfa af yfirvegun fram í tímann, þar sem um langhlaup væri að ræða og við værum enn sem komið er einungis í upphitun fyrir verkefni næstu mánaða.

Jóhann Thoroddsen, sálfræðingur hjá Rauða krossinum, fjallaði um nauðsyn þess að fólk hlúi að andlegri líðan sinni og sinna nánustu. Umfjöllun getur valdið kvíða og er því mikilvægt að foreldrar sýni sérstaka aðgát í návist barna. Hann beindi því til fólks að varast sögusagnir sem eiga sér ekki stoð í raunveruleikanum og reyna að lifa eðlilegu lífi og halda ró sinni við þessar óvenjulegu aðstæður sem nú eru uppi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert