Efling krefst fundar í dag

Frá síðasta samningafundi Eflingar og Reykjavíkurborgar hjá ríkissáttasemjara, 26. febrúar.
Frá síðasta samningafundi Eflingar og Reykjavíkurborgar hjá ríkissáttasemjara, 26. febrúar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur farið fram á við ríkissáttasemjara að haldinn verði samningafundur í kjaradeilu félagsins við Reykjavíkurborg, eigi síðar en í dag. 

Óskinni var komið á framfæri símleiðis við Ástráð Haraldsson aðstoðarríkissáttasemjara í morgun, að því er segir í tilkynningu frá Eflingu. 

Síðasti fundur í deilunni var á miðvikudaginn í síðustu viku, fyrir átta dögum. Ótímabundið verkfall nær 2.000 félagsmanna Eflingar hefur staðið frá 16. febrúar. 

Í fyrradag bauð Efling tveggja daga verkfallshlé gegn staðfestingu borgarstjóra á svokölluðu „Kastljóstilboði“. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sagðist í kjölfarið standa við allt sem hann sagði um til­boð Reykja­vík­ur­borg­ar til Efl­ing­ar í Kast­ljósi, en ekki sé gagn­legt þegar reynt sé að snúa út úr þeim yf­ir­lýs­ing­um eða standa í skeyta­send­ing­um í fjöl­miðlum. 

Ekkert varð því af verkfallsfrestun en í gær féllst Sólveig Anna á boð Dags um fund með tveim­ur skil­yrðum. 

Með því að krefjast fundar í dag vill Efling reyna til þrautar að þokast nær samkomulagi í deilunni. „Samninganefnd Eflingar mun krefjast efnda á loforðum borgarstjóra um grunnlaunahækkanir en heildstæð útfærsla á þeim hefur aldrei verið lögð fram við samningaborðið. Einnig mun nefndin krefjast efnda á loforðum borgarstjórnarmeirihlutans um leiðréttingu á launum kvennastétta,“ segir í tilkynningunni. 

Þar er jafnframt farið yfir þær tillögur sem Efling hefur áður lagt fram til lausnar og málamiðlana í deilunni, en þær eru svohljóðandi: 

  • Efling kynnti á samningafundum 16. og 31. janúar tvær ólíkar útgáfur af tilboði um launaleiðréttingu byggð á fyrirmynd frá 2005 í tíð Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra.
  • Efling kynnti á samningafundi 18. febrúar tilboð um samsetta leið til launaleiðréttingar byggð á annars vegar jöfnun launabila í töflu að tillögu Reykjavíkurborgar og hins vegar á álags- og uppbótargreiðslum.
  • Efling kynnti á samningafundi 27. febrúar tilboð um samsetta leið til launaleiðréttingar byggð á annars vegar grunnlaunahækkunum sem Dagur B. Eggertsson lýsti í Kastljóssviðtali og hins vegar á blandaðri leið uppbóta vegna eldri sérgreiðslna og starfstengdu jöfnunarálagi.
  • Efling bauð borgarstjóra þann 3. mars að ganga til samkomulags um að hann staðfesti „Kastljósstilboðið“ gegn því að verkfalli verði frestað í tvo sólarhringa.

„Reykjavíkurborg hefur hafnað öllum ofangreindum tillögum Eflingar,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert