Hafi ekki áhyggjur af afkomu í sóttkví

Fólk sem fer í sóttkví þarf ekki að hafa áhyggjur …
Fólk sem fer í sóttkví þarf ekki að hafa áhyggjur af afkomu sinni. mbl.is/Hari

Ríkisstjórn Íslands, Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands hafa náð þríhliða samkomulagi um aðgerðir til þess að hægja á útbreiðslu COVID-19 veirunnar hér á landi með því að tryggja að einstaklingar geti fylgt fyrirmælum heilbrigðisyfirvalda um að fara í sóttkví án þess að hafa áhyggjur af afkomu sinni. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Mikill fjöldi launafólks hefur að tilmælum yfirvalda farið í sóttkví sem felur það í sér að það getur ekki sótt vinnu auk þess sem öll samskipti eru takmörkuð. Slíkt felur í sér mikla röskun á högum og daglegu lífi. Miklir samfélagslegir hagsmunir eru fólgnir í því að sóttkví sé haldin og hægt á útbreiðslu veirunnar.

Meðan á sóttkví stendur reynir ekki á veikindarétt almenns launafólks, frekar en opinberra starfsmana, en sjúkrasjóðirnir þurfa að vera reiðubúnir til að taka við þeim sem veikjast og tæma veikindarétt sinn af þeim ástæðum.

„Þetta er eitt stærsta samfélagslega úrlausnarefnið í dag og við leggjumst öll á árarnar til að minnka skaða eins og mögulegt er, fyrir einstaklinga sem lenda í sóttkví eða veikindum og okkur öll sem samfélag. Að vera óviss um afkomu er ekki þolandi í þessu ástandi.“ Þetta er haft eftir Drífu Snædal, forseta ASÍ, í tilkynningu. Hún segir ennfremur ánægjulegt að tekist hafi að eyða óvissu um afkomu fólks vegna COVID-19. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert