Tilfelli kórónuveiru orðin 34

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Átta hafa í dag greinst með veiruna sem veld­ur COVID-19-sjúk­dómn­um hér á landi. Er heildarfjöldi smitaðra því orðinn 34.

Þetta staðfestir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir við mbl.is.

Þórólfur segir um að ræða niðurstöður úr sýnum sem tekin voru í gær. Sjö eru með veiruna og segir sóttvarnalæknir að um eitt vafasýni sé að ræða en telja megi það með.

Líkt og hingað til tengjast smit ferðum Íslendinga til skíðasvæða á norðurhluta Ítalíu og í Austurríki.

Á fjórða hundrað er í sóttkví hér á landi en þar eru meðal annars þeir sem komu til landsins frá Veróna um síðustu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert