37 tilfelli staðfest hér á landi

Samtals hafa 37 einstaklingar greinst með COVID-19 frá 28. febrúar. …
Samtals hafa 37 einstaklingar greinst með COVID-19 frá 28. febrúar. Tæplega 400 einstaklingar eru í sóttkví. mbl.is/Hallur Már

37 manns hafa greinst með kórónuveiruna sem veldur COVID-19 sjúkdómnum hér á landi. Tvö tilfelli hafa bæst við þau sem greindust í gær. Frá þessu er greint á Facebook-síðu almannavarna en smitin fengust staðfest á stöðufundi almannavarna í morgun. 

Fólkið sem greinst hefur er á aldrinum 44-67 ára og enginn er alvarlega veikur. Smitin má öll rekja til Norður-Ítalíu eða Austurríkis.  

368 sýni hafa verið greind og tæplega 400 manns eru í sóttkví. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert