Sjúkraliðafélag Íslands samdi við ríkið

Samninganefndir Sjúkraliðafélags Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga undirrituðu kjarasamning á …
Samninganefndir Sjúkraliðafélags Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga undirrituðu kjarasamning á sjötta tímanum í nótt. Núna hefur samnninganefnd Sjúkraliðafélagsins samið við ríkið. Ljósmynd/Ríkissáttasemjari

Sjúkraliðafélag Íslands skrifaði á áttunda tímanum í morgun undir kjarasamning við ríkið.

Þetta staðfestir Kristín Ólafsdóttir, varaformaður félagsins, við mbl.is. „Þetta var löng lota en við gengum sátt frá borði,“ segir hún.

Verkföllin áttu að hefjast klukkan 7 í morgun. Áður hafði félagið samið við Samband íslenskra sveitarfélaga. 

Næsta skref hjá félaginu er að kynna samninginn fyrir félagsmönnum sínum og verður það gert á næstu dögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert