134 tilfelli kórónuveirunnar greind hér á landi

Síðastliðinn sólarhring hafa greinst 29 ný smit. Fjöldi smitaðra er …
Síðastliðinn sólarhring hafa greinst 29 ný smit. Fjöldi smitaðra er því 134 talsins, þar af 30 innanlandssmit. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sex ný smit kórónuveirunnar hafa greinst síðdegis og eru staðfest smit því orðin 134 talsins. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu almannavarna sem send var út síðdegis. 

Fjögur sýnanna má rekja til skíðasvæða í Ölpunum en nánari upplýsingar liggja ekki fyrir. Samtals hafa 1.188 sýni verið tekin, þar af 253 síðastliðinn sólarhring. 

1.109 eru í sóttkví og 134 í einangrun. 

Hér má nálgast allar tölulegar upplýsingar um útbreiðslu kórónuveirunnar á Íslandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert