Starfsdagur kennara á mánudaginn

mbl.is/​Hari

Ákveðið hefur verið að halda starfsdag í grunn- og leikskólum á höfuðborgarsvæðinu á mánudaginn til að stjórnendur og starfsmenn geti skipulagt skólastarfið sem best vegna kórónuveirunnar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Fyrr í dag var ákveðið að skólahald í grunnskólum yrði takmörkunum háð næstu vikurnar.

Foreldrar leik- og grunnskólabarna eru beðnir um að fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu um helgina og á mánudaginn, m.a. á vefsíðum sveitarfélaga og grunn- og leikskóla.

Þá eru í undirbúningi sameiginlegar leiðbeiningar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um frístundaheimili, íþróttastarf, íþróttamannvirki, skólahljómsveitir og aðrar tómstundir barna.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert