Hvað þýðir samkomubann?

Maður er manns gaman og þjóðin verður að standa saman, …
Maður er manns gaman og þjóðin verður að standa saman, en þó ekki of nálægt næstu fjórar vikurnar og svona fjöldasamkoma, eins og sést á meðfylgjandi ljósmynd, er ekki í boði. mbl.is/​Hari

Heilbrigðisráðherra greindi frá því í gær að hann hefði að tillögu sóttvarnalæknis ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga til að takmarka samkomur í fjórar vikur frá miðnætti 15. mars, þ.e.a.s. samkomubann. En hvað er samkomubann og hvers vegna er það sett á?

Málið er útskýrt nokkuð vel á upplýsingasíðu um kórónuveiruna og COVID-19 sem var nýverið hleypt af stokkunum.

Svandís Svavarsdóttir og Alma Möller brugðu á leik í Ráðherrabústaðnum …
Svandís Svavarsdóttir og Alma Möller brugðu á leik í Ráðherrabústaðnum í gær, en þar var greint frá því að samkomubann muni taka gildi aðfararnótt mánudags. Kannski er Alma þarna að minna á að það þurfi að tveir metrar á milli manna í banninu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fyrst ber að nefna að samkomubannið gildir í fjórar vikur, frá og með mánudeginum 16. mars kl. 00:01 til og með mánudagsins 13. apríl kl. 00:01.

100 manns og tveir metrar

Með samkomubanni er átt við skipulagða viðburði þar sem fleiri en 100 manns koma saman. Við öll minni mannamót þurfi auk þess að tryggja að nánd milli manna sé að minnsta kosti yfir tveir metrar og að aðgengi að handþvotti og handspritti sé gott.

Ennfremur segir að allir aðrir staðir þurfi að tryggja að ekki séu á sama tíma fleiri en 100 manns inni í sama rými. Þetta á t.d. við um vinnustaði, veitingastaði, mötuneyti, kaffihús, skemmtistaði, verslanir, sundlaugar, líkamsræktarstöðvar og söfn. Þessi mörk eiga einnig við um almenningssamgöngur og aðra sambærilega starfsemi.

Á samkomum, öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi þar sem færri en 100 eru samankomnir skal eins og mögulegt er skipuleggja rými þannig að hægt sé að hafa að minnsta kosti tvo metra á milli einstaklinga.

Tekið er fram að samkomubannið nái ekki til alþjóðaflugvalla eða alþjóðahafna, flugvéla eða skipa. Hvatt er til þess að sóttvarnaráðstafanir verði efldar og rekstraraðilar grípi til ýtrustu ráðstafana til að minnka möguleika á smiti.

Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason og Alma Möller hafa staðið vaktina …
Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason og Alma Möller hafa staðið vaktina með mikilli prýði ásamt fjölmörgum sem vinna hörðum höndum á bak við tjöldin. Víðir minnir landsmenn á að halda í gleðina og standa saman - þó ekki of nálægt. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hvers vegna er sett á samkomubann?

Smitum á Íslandi fjölgar dag frá degi og svokölluðum þriðja stigs smitum einnig. Þá eru dæmi um smit sem ekki hefur tekist að rekja til utanferða annarra einstaklinga. Þetta gefur vísbendingu um að hætta sé á að COVID-19 geti nú farið að smitast hraðar milli fólks en hingað til.

Á sama tíma er hópur starfsmanna Landspítala í sóttkví og gæti frekari útbreiðsla faraldursins dregið úr getu spítalans til að sinna hlutverki sínu.

Því er það mat sóttvarnalæknis að nú sé rétti tíminn til að grípa til nauðsynlegra aðgerða til að hægja á faraldrinum til að auka líkur á því að heilbrigðiskerfið geti sinnt þeim sem veikjast af COVID-19 ásamt því að sinna annarri bráðaþjónustu.

Þetta gengur ekki, því þegar bannið hefur tekið gildi þurfa …
Þetta gengur ekki, því þegar bannið hefur tekið gildi þurfa að vera a.m.k. tveir metrar á milli einstaklinga. Hér gefur að líta fréttamenn, tökumenn og ljósmyndara á einum af fjölmörgum upplýsingafundum almannavarna og landlæknis um kórónuveiruna. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hvernig verður skólahaldi háttað?

Töluverðar takmarkanir eru á skólahaldi meðan á samkomubanninu stendur. Í mörgum tilfellum geta nemendur ekki mætt í skólabyggingar heldur stunda nám í fjarkennslu. Í öðrum tilfellum eru strangar kröfur settar um fjölda og nálægð nemenda.

Takmarkanirnar gilda um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla en einnig aðrar menntastofnanir, frístundaheimili, félagsmiðstöðvar og íþróttastarf.

Framhaldsskólum og háskólum verður lokað og kennsla fer fram í fjarkennslu eins og hægt er.
Grunnskólar mega hafa kennslu í skólabyggingum ef þeir tryggja að ekki séu fleiri en 20 nemendur í sömu kennslustofu og að nemendur blandist ekki milli hópa, til dæmis í mötuneyti eða frímínútum. Eins þarf að þrífa eða sótthreinsa skólabyggingarnar eftir hvern dag.
Leikskólar mega hafa opið og halda uppi leikskólastarfi ef þeir tryggja að börn séu í fámennum hópum og aðskilin eins og kostur er. Eins þarf að þrífa eða sótthreinsa leikskólabyggingarnar eftir hvern dag.

Þessar takmarkanir verða í stöðugu endurmati þannig að hægt sé að draga úr þeim eða þá lengja tímabilið sem þær gilda ef þörf þykir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert