Eldur á Dirty Burger & Ribs

Eldur kom upp í rafmagnstöflu á Dirty Burgers and Ribs …
Eldur kom upp í rafmagnstöflu á Dirty Burgers and Ribs á Miklubraut um klukkan ellefu. Ljósmynd/Facebook

Eldur kom upp á skyndibitastaðnum Dirty Burger & Ribs á Miklubraut rétt fyrir klukkan ellefu. 

Mannskapur frá einni slökkvistöð var sendur á staðinn að sögn varðstjóra slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu og er um að ræða smávægilegan eld sem kom upp í rafmagnstöflu. 

Uppfært klukkan 12:02: 

Greiðlega gekk að slökkva eldinn og engum varð meint af. Ekki er vitað um tjón en eldsvoðinn mun hafa áhrif á rekstur staðarins í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert