Lóan er komin

Vorboðinn ljúfi. Þó sennilega ekki sá sami.
Vorboðinn ljúfi. Þó sennilega ekki sá sami. mbl.is/Ómar Óskarsson

Lóan er komin til landsins. Frá þessu greinir Fuglaathugunarstöð Suðausturlands í færslu á Facebook. Athugunarmaður stöðvarinnar heyrði í heiðlóu utan við Ósland á Höfn en tókst þá ekki að berja hana augum.

Það tókst hins vegar í dag er hann sá bæði og heyrði í lóu á Flóanum við Höfn. Lóan er fyrr á ferðinni í ár en í fyrra þegar ekki sást til lóu hérlendis fyrr en í lok mars.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert