1.733 í sóttkví og 180 smitaðir

Tilkynnt var um samgöngubannið í síðustu viku: Þórólfur Guðnason, Svandís …
Tilkynnt var um samgöngubannið í síðustu viku: Þórólfur Guðnason, Svandís Svavarsdóttir, Katrín Jakobsdóttir, Lilja Alfreðsdóttir og Víðir Reynisson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alls eru 180 smitaðir af kórónuveirunni á Íslandi og eru 1.733 í sóttkví. Þetta kemur fram á  upplýsingavef um COVID-19. Heldur hefur fækkað í sóttkvínni þar sem klukkan 22 í gærkvöldi var 1.761 í sóttkví. Vefurinn var uppfærður klukkan 7 í morgun hefur tala smitaðra ekki breyst frá síðustu uppfærslu sem var klukkan 22 í gærkvöldi. Þrír eru á sjúkrahúsi og 180 í einangrun.

Á höfuðborgarsvæðinu eru 165 smitaðir og 1.251 í sóttkví. Níu eru smitaðir á Suðurlandi, 4 á Suðurnesjum og 1 á Norðurlandi eystra. Eitt smit er óstaðsett.

Fyrsta smit kórónuveirunnar í Vestmannaeyjum var greint síðdegis í gær. Sá smitaði er lögreglumaður sem smitaðist ekki við störf sín svo vitað sé. Þetta kom fram í færslu lögreglunnar á Facebook í gærkvöldi.

Aðgerðastjórn almannavarna hefur verið virkjuð í Eyjum en smitrakning er í gangi af hálfu rakningarteymis almannavarna. Nú eru átján í sóttkví í Vestmannaeyjum og er viðbúið að þeim muni halda áfram að fjölga á næstunni.

Báðir stofnar kórónuveiru hafa greinst hérlendis, S-stofn og L-stofn, en sá síðari virðist valda meiri veikindum.

Samkomubann tók gildi á miðnætti og segir sóttvarnalæknir að slíkt bann hafi reynst vel í baráttunni við aðra faraldra.

Í tilkynningu frá Icelandair í gærkvöldi kom fram að útbreiðsla COVID-19-veirunnar og yfirgripsmiklar ferðatakmarkanir hafa haft veruleg áhrif á eftirspurn á mörkuðum Icelandair og eru að hafa neikvæð áhrif á bókunarstöðu félagsins.

Á síðustu dögum hefur félagið dregið úr flugframboði um allt að 30%. Líklegt er að dregið verði enn frekar úr flugframboði á meðan ferðatakmarkanir eru í gildi og staðan getur breyst hratt. Félagið heldur áfram að fylgjast grannt með stöðu mála og hefur gripið til ýmissa aðgerða í samráði við heilbrigðisyfirvöld til að tryggja heilsu og öryggi starfsfólks og farþega.

Óvissa ríkir um háannatíma sumarsins en félagið gerir að óbreyttu ráð fyrir að draga úr flugframboði um að minnsta kosti 25% miðað við það sem áður hafði verið kynnt. Félagið mun þó leggja áherslu á að viðhalda þeim sveigjanleika sem þarf til að geta brugðist hratt við eftir því hvernig eftirspurn þróast.

Fjárhagsleg áhrif vegna útbreiðslu COVID-19-veirunnar á starfsemi félagsins eru enn óviss. Lausafjárstaða félagsins nam rúmum 39 milljörðum króna (301,6 milljónum dala) í árslok 2019 og er á svipuðum stað í dag. Ljóst að útbreiðsla COVID-19-veirunnar muni hafa neikvæð áhrif á sjóðstreymi félagsins en unnið er að því að lágmarka þau áhrif, meðal annars með því að draga úr flugframboði og vinna með stéttarfélögum til að lækka launakostnað verulega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert