Hafna Eflingarsamningi borgarinnar

Kópavogsbær og fleiri sveitarfélög hafa hafnað tilboði Eflingar um sams konar kjarasamning og félagið hefur gert við Reykjavíkurborg og ríkið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu.

„Sveitarfélögin sem eiga ósamið við Eflingu, þar á meðal Kópavogsbær, hafa hafnað að veita starfsfólki sínu sambærilega kjaraleiðréttingu og þá sem Efling hefur samið um við Reykjavíkurborg og ríkið.

Í samningi Eflingar við Reykjavíkurborg var samið um grunnlaunahækkanir umfram lífskjarasamninginn um að meðaltali 7.800 krónur og sérstaka leiðréttingu lægstu launa í formi aukagreiðslu. Í samningi Eflingar við ríkið er svigrúm til sérstakrar leiðréttingar á kjörum félagsmanna, sem flestir vinna á Landspítalanum.

Á samningafundi í dag fyrir hádegi hafnaði samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga alfarið að útfæra sams konar leiðréttingu fyrir félagsmenn Eflingar sem starfa hjá Kópavogsbæ, Seltjarnarnesbæ og öðrum sveitarfélögum í nágrenni Reykjavíkur,“ segir í tilkynningu frá Eflingu en stéttarfélagið segist hafa lýst vilja til að útfæra ríkis- og borgarleiðréttinguna með tilliti til launatöflu sveitarfélaganna og til að hlýða á gagntilboð. Var því hafnað.

„Efling kom á framfæri hvatningu til sveitarfélaganna um að endurskoða afstöðu sína og kallaði eftir að fundað yrði aftur í deilunni strax eftir hádegi. Tími fyrir annan fund hefur ekki verið ákveðinn.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert