Rafmagnið er komið aftur á

Rafmagn fór af hluta höfuðborgarsvæðisins um klukkan 10 í kvöld.
Rafmagn fór af hluta höfuðborgarsvæðisins um klukkan 10 í kvöld.

Rafmagnslaust var í Garðabæ, hluta Hafnarfjarðar, víða í Kópavogi og hluta Efra-Breiðholts í um 20 mínútur í kvöld. Rafmagnið fór af klukkan rúmlega 22 í kvöld og var komið aftur á um 20 mínútum seinna, að sögn Steinunnar Þorsteinsdóttur, upplýsingafulltrúa Landsnets, við mbl.is

Ekki er vitað hvað olli því að línan um Hnoðraholt í Garðabæ fór út. Unnið er að því að afla þeirra upplýsinga, að sögn Steinunnar. 

Í Kópavogi var meðal annars rafmagnslaust í hverfunum kringum Smáralind og í Kórahverfi.  Í Hafnarfirði fór allt rafmagn út á Völlunum. 

Fréttin var uppfærð klukkan 22.50.

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert