Sýktir hafa ekki þurft öndunarvélar

Í öndunarvél. Myndin tengist ekki fréttinni.
Í öndunarvél. Myndin tengist ekki fréttinni. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Yfirvöld hafa ekki misst tökin á kórónuveirusmitum og er samkomubanni ekki beitt sem pólitísku tæki hérlendis þó að einhverjir hafi beitt því sem slíku erlendis. Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir í samtali við Morgunblaðið.

26 öndunarvélar eru til staðar á Landspítalanum en enginn sem smitaður er af kórónuveiru hér á landi hefur þurft að nota slíka vél hingað til.

Samkomubann fyrir 100 manns eða fleiri tók gildi á miðnætti í nótt, háskólum og framhaldsskólum hefur verið lokað og til sérstakra ráðstafana gripið í leik- og grunnskólum.

Þegar Morgunblaðið fór í prentun í gærkvöldi höfðu 175 tilfelli kórónuveiru greinst hérlendis og tæplega 1.800 manns voru í sóttkví.

Spurður hvort það sé vísindalega sannað að samkomubann hafi áhrif á útbreiðslu veiru sem þessarar segir Þórólfur svo vera en aðgerðir einstaklinga til að koma í veg fyrir smit skipti mestu máli.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert