Einn maður handtekinn á vettvangi

Allt tiltækt slökkvilið var kallað út þegar eldurinn kviknaði klukkan …
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út þegar eldurinn kviknaði klukkan 23 á miðvikudagskvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einn maður var handtekinn á staðnum þar sem eldur kviknaði á Pablo diskóbar við Veltusund á Ingólfstorgi um klukkan ellefu á miðvikudagskvöld. 

Fjórir lögreglumenn handtóku manninn og færðu hann inn í lögreglubíl, samkvæmt upplýsingum mbl.is. Mikil læti voru í manninum. Ekki fékkst staðfest hjá lögreglunni hvort maðurinn væri grunaður um íkveikju.  

Um tveimur tímum eftir að eldurinn kviknaði var slökkviliðið að slökkva síðustu glæðurnar. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert