Viðspyrna fyrir Ísland - efnahagsaðgerðir stjórnvalda

Blaðamannafundur ríkisstjórnarinnar í Hörpu. Sigurður Ingi Jóhannsson, Katrín Jakobsdóttir og …
Blaðamannafundur ríkisstjórnarinnar í Hörpu. Sigurður Ingi Jóhannsson, Katrín Jakobsdóttir og Bjarni Benediktsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Á meðal þeirra aðgerða sem ríkið mun grípa til vegna ástandsins sem ríkir vegna útbreiðslu kórónuveirunnar er að ríkið mun greiða allt að 75% launa fólks næstu mánuði. Það verður ríkisábyrgð á brúarlánum til fyrirtækja. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnvöldum undir yfirskriftinni Viðspyrna fyrir Ísland.

Þar segir, að umfang aðgerða fyrsta áfanga stjórnvalda til að bregðast við áhrifum heimsfaraldurs kórónuveiru nemur um 230 milljörðum kr. eða tæplega 8% af landsframleiðslu.

Aðgerðirnar eru þríþættar og miða að því að tryggja afkomu fólks og fyrirtækja, verja grunnstoðir samfélagsins og skapa öfluga viðspyrnu fyrir efnahagslífið.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, kynntu aðgerðirnar í Hörpu í dag. 

mbl.is

„Aðgerðir stjórnvalda munu veita öflugt mótvægi við efnahagsáhrif vegna COVID-19. Þær miða fyrst og fremst að því að verja störf og auðvelda heimilum og fyrirtækjum að takast á við það tímabundna tekjutap sem þau kunna að verða fyrir. Í ljósi minnkandi umsvifa munu stjórnvöld í krafti hlutastarfaleiðarinnar greiða allt að 75% launa starfsfólks sem lækkar í starfshlutfalli, að hámarki 700 þúsund kr., og gera þannig  launafólki og atvinnurekendum kleift að halda ráðningarsambandi. Úrræðið gildir næstu tvo og hálfan mánuð en reynslan af úrræðinu verður endurmetin í maí nk. 

Fyrirtækjum verður gefinn kostur á að fresta greiðslum opinberra gjalda til næsta árs til að bæta lausafjárstöðu í atvinnurekstri og gistináttaskattur verður afnuminn til ársloka 2021. Útlánasvigrúm verður aukið með lækkun bankaskatts og ríkisábyrgð á lánum til lífvænlegra fyrirtækja, sem er ætlað að auðvelda þeim að standa í skilum, sérstaklega vegna launagreiðslna. Með því að hjálpa fyrirtækjum að standa í skilum og viðhalda ráðningarsambandi launafólks og vinnuveitenda má stytta þann tíma sem fyrirtæki þurfa til að ná viðspyrnu á ný,“ að því er segir í tilkynningu. 

Björn Brynjúlfur Björnsson hagfræðingur fór yfir aðgerðirnar.
Björn Brynjúlfur Björnsson hagfræðingur fór yfir aðgerðirnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heimilin í brennidepli 

„Afkoma heimilanna er í brennidepli aðgerðanna. Þegar hafa verið tryggðar greiðslur til fólks í sóttkví sem er grundvallaratriði til að hjálpa fólki við að taka ábyrgar ákvarðanir til að draga úr útbreiðslu veirunnar. Hlutastarfaleiðinni er ætlað að verja störf og afkomu fólks við þrengingar á vinnumarkaði. Einnig verður veitt heimild til að taka út séreignarsparnað að hámarki 800 þ.kr. á mánuði í 15 mánuði og endurgreiðslur vegna viðhaldsvinnu við heimili og frístundahúsnæði hækkaðar í úr 60% í 100%. Að auki verður endurgreiðsluúrræðið útvíkkað til heimilisþjónustu og tekin upp ný heimild fyrir þriðja geirann svokallaða, sem nær m.a. til almannaheilla- og íþróttafélaga, til endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu fólks við byggingaframkvæmdir á þeirra vegum. Loks verður greiddur út sérstakur barnabótaauki 1. júní 2020 með öllum börnum undir 18 ára aldri. Foreldrar með lægri meðaltekjur en 927 þús. kr. á mánuði árið 2019 fá 40 þús. kr. á hvert barn og aðrir 20 þús kr. 

Farið verður í sérstakt 20 ma.kr. fjárfestingarátak árið 2020, þar sem hið opinbera og félög þess setja aukinn kraft í samgöngubætur, fasteignaframkvæmdir, og upplýsingatækni, auk þess sem framlög verða aukin í vísinda- og nýsköpunarsjóði. Fram kom á fundi ráðherranna að inntak þess átaks verður nánar kynnt innan skamms.“

Spurt og svarað um aðgerðirnar má lesa hér

Ýtarleg glærukynning, Viðspyrna fyrir íslenskt samfélag

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert