Öllum söfnum, skíðasvæðum og sundlaugum lokað

Það verður ekki mikið buslað í sundlaugum landsins næsta mánuðinn.
Það verður ekki mikið buslað í sundlaugum landsins næsta mánuðinn. mbl.is/Kristinn Magnússon

Öllum söfnum Reykjavíkurborgar verður lokað frá og með morgundeginum 24. mars vegna herts samkomubanns. Skíðasvæðum og sundlaugum verður einnig lokað en öll sex og tólf mánaða sundkort verða framlengd um þann tíma sem laugarnar eru lokaðar. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn lokar einnig, Ylströndin verður áfram lokuð sem og Skautahöllin.

Innri starfsemi safna borgarinnar verður þó með óbreyttu sniði og starfsfólk mun eftir sem áður svara erindum og sinna rannsóknum, skráningum og undirbúningi nýrra sýninga síðar á árinu. Ekki verða lagðar sektir á safnkost bókasafnsins á tímabilinu og gildistími Menningarkorta framlengist um sem nemur lokunartíma safnanna.

Þetta þýðir að öllum bókasöfnum verður lokað í Reykjavík, Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum og á Ásmundarsafni sem og eftirfarandi sýningarstöðum Borgarsögusafns: Landnámssýningunni, Sjóminjasafni Reykjavíkur, Ljósmyndasafni Reykjavíkur og safnsvæði Árbæjarsafns.

Áhugasömum er bent á vefsíður safnanna þar sem finna má ýmsan fróðleiks, svo sem um sýningar, listaverk, gamlar ljósmyndir, rannsóknarskýrslur og safnmuni. Á vefsíðu Listasafns Reykjavíkur er einnig efni sem nota má í fjarkennslu og á morgun fer safnið af stað með listaverk dagsins í öllum sínum miðlum. Þá er vert að benda á app listasafnsins um útilistaverk í Reykjavík sem hægt er að nýta í gönguferðum um borgina.

Fleira er í bígerð hjá söfnum Reykjavíkurborgar, til að miðla listum og menningu til borgarbúa, og verður það kynnt frekar á næstu dögum, að fram kemur í tilkynningu frá borginni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert