Tæplega 4.000 sýnatökupinnar til á landinu

Alls eru til um 4.000 sýnatökupinnar á landinu en á …
Alls eru til um 4.000 sýnatökupinnar á landinu en á morgun skýrist hvort um 20 þúsund sýnatökupinnar sem Össur útvegaði reynist nothæfir. mbl.is/Hallur Már

Ekki er útlit fyrir að skortur verði á sýnatökupinnum næstu daga eftir að sending með 2.750 pinnum barst til landsins síðdegis. Um 1.200 pinnar voru til í morgun og eru þeir í heildina þá tæplega 4.000 þessa stundina. 

Þetta staðfestir Karl G. Krist­ins­son, yf­ir­lækn­ir á sýkla- og veiru­fræðideild Land­spít­al­ans, í samtali við mbl.is. 

Sendingin kom frá umboðsaðila á Íslandi og ætti að nýtast næstu daga, en ekki mikið lengur, að sögn Karls. Á morgun skýrist svo hvort um 20 þúsund sýnatökupinnar sem Össur útvegaði reynist nothæfir. 

Íslensk erfðagreining sagði þá ónothæfa en prófanir voru gerða á tveimur heilsugæslustöðvum í dag. Eins og mbl.is greindi frá fyrr í dag telur Karl að full­yrðing ÍE um að pinn­arn­ir virkuðu ekki hafi lík­lega verið byggð á mis­skiln­ingi. Ákveðið var að prófa pinn­ana aft­ur í dag og taka þá tvö sýni úr sömu sjúk­ling­um með pinn­un­um sem hafa verið í notk­un og pinn­un­um sem Össur út­vegaði.

Niðurstöður úr samprófun liggja fyrir en það mun ekki skýrast fyrr en á morgun hvort pinnarnir eru nothæfir. „Við erum að fara yfir niðurstöðurnar og ætlum að gefa okkur smá tíma í það áður en við ákveðum hvort við notum þetta eða ekki,“ segir Karl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert