18 stiga dægursveifla

Kort/Veðurstofa Íslands

Það lægir víðast hvar á landinu þegar líður á daginn og dregur úr éljum vestanlands fyrir hádegi, en síðdegis snýst í norðlæga átt með dálitlum éljum á norðanveðru landinu. Í nótt er víða spáð  hægviðri og léttskýjað og því gæti frostið farið undir 10 stig allvíða en á morgun hlýnar talsvert í vestanátt og gæti hiti náð allt að 8 stigum.

„Áframhaldandi vestanátt á sunnudag og mánudag með rigningu eða súld en síðan er útlit fyrir norðan hríð aðfaranótt miðvikudags og mun kaldari loftmassa yfir landinu. Vetrinum er því ekki alveg lokið þó apríl sé á næsta leiti,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 

Veðurspá fyrir næstu daga

Suðvestan 5-13 og él fram eftir morgni en bjartviðri austantil. Norðvestlægari eftir hádegi og stöku él norðanlands en léttir til um landið sunnanvert.
Hæg breytileg átt og víða léttskýjað í nótt en suðvestan 8-15 m/s á morgun og þykknar upp með slyddu og síðan rigningu eða súld vestan til á landinu.

Hiti yfirleitt kringum frostmark við suðurströndina en annars frost 2 til 8 stig. Kólnar í kvöld en hlýnar um allt land á morgun.

Á laugardag:

Vestan 8-13 og þykknar smám saman upp með lítilsháttar súld eða rigningu vestan til annars þurrt að kalla. Hlýnar í veðri og hiti víða yfir frostmarki um kvöldið.

Á sunnudag:
Vestan 8-15 og skýjað með köflum og lítilsháttar súld vestan til annars úrkomulítið. Hiti 2 til 7 stig, hlýjast S-lands.

Á mánudag:
Stíf vestanátt með súld eða rigningu vestan til, einkum síðdegis. Þurrt að kalla A-lands. Áfram milt.

Á þriðjudag:
Útlit fyrir hægari vestlæga átt og rigningu eða súld vestanlands. Snýst í norðlæga átt með snjókomu eða éljum við norðurströndina um kvöldið. Hiti um og undir frostmarki norðan til en frostlaust syðra.

Á miðvikudag:
Norðlæg átt. Él norðan til en bjart með köflum um landið sunnan og vestanvert. Kólnar í veðri.

Á fimmtudag:
Útlit fyrir norðanátt og él norðan til og talsvert frost víðast hvar.

Veðrið á mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert