Blaðamannafundur almannavarna

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma D. Möller landlæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Alma D. Möller landlæknir. Ljósmynd/Lögreglan

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í Skógarhlíð 14. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Alma D. Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri verður gestur fundarins í dag og mun hún ræða þær áskoranir sem blasa við lögreglunni í ljósi kórónuveirunnar. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert