Fyrirtækjum með brúarlán bannað að greiða út arð

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ekki verður heimilt að greiða arð út úr fyrirtækjum sem sem taka brúarlán, ný lán með ríkisábyrgð sem stjórnvöld hyggjast veita fyrirtækjum sem orðið hafa fyrir miklum tekjusamdrætti vegna kórónuveirufaraldursins.

Þetta segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í færslu á Facebook. Þá verður sömu fyrirtækjum einnig óheimilt að kaupa eigin hlutabréf, en skilyrðin munu gilda meðan á ríkisábyrgð stendur. Skipuð verður sérstök eftirlitsnefnd með framkvæmd brúarlána, sem ætlað er að halda ráðherrum og alþingi upplýstu.

Með brúarlánum mun ríkið gangast í ábyrgð fyrir helmingi bankalána til fyrirtækja sem hafa orðið fyrir að minnsta kosti 40% tekjufalli vegna áhrifa faraldursins. Áætlað er að heildarlánafjárhæð verði um 70 milljarðar króna og því ríkisábyrgð af 35 milljörðum. Gera stjórnvöld ráð fyrir að allt að helmingur lána muni ekki endurgreiðast, sem hefði í för með sér að 17,5 milljarða króna kostnaður félli á ríkið.

Ekki sömu skilyrði um hlutabætur

Töluvert hefur verið rætt um arðgreiðslur stöndugra fyrirtækja sem hyggjast nýta sér úrræði stjórnvalda vegna kórónuveirunnar. Má þar nefna hinar svokölluðu hlutabætur, þar sem fólki sem hefur lent í skertu starfshlutfalli vegna veirunnar er gefinn kostur á að þiggja atvinnuleysisbætur að hluta til að mæta tekjutapi. Ríflega 17.000 umsóknir um slíkar bætur hafa borist.

Fjöl­mörg fyr­ir­tæki hafa nýtt sér úrræðið og lækkað starfs­hlut­fall þorra starfs­manna sinna. Þeirra á meðal eru fyr­ir­tæki sem síðustu ár hafa malað gull. Má þar nefna Bláa lónið, sem í fyrra­sum­ar greiddi fjóra millj­arða í arð en sagði í vikunni 164 starfmönnum upp og bauð 400 til viðbótar upp á skert starfshlutfall.

Í samtali við mbl.is á föstudag var Katrín spurð hvort hún teldi óeðlilegt að stönd­ug fyr­ir­tæki nýttu sér þessa leið. Sagðist hún ekki vilja dæma ein­stök fyr­ir­tæki. „Auðvitað er það svo að við reiðum okk­ur á að at­vinnu­lífið sýni ábyrgð. En meg­in­mark­miðið er að verja af­komu fólks.“

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2020/03/27/gera_rad_fyrir_20_30_thusund_umsoknum/

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert