80% Íslendinga fóru í utanlandsferð

Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Eggert

Marktæk fækkun var í utanlandsferðum Íslendinga milli áranna 2018 og 2019 og álíka margir ferðuðust innanlands árið 2019 og árið 2018, flestir um Norður- og Suðurland.

Þetta kemur fram í niðurstöðum árlegrar könnunar Ferðamálastofu meðal Íslendinga um ferðalög þeirra á árinu 2019 og ferðaáform á árinu 2020. Könnunin hefur verið gerð frá árinu 2010.

Spánn og Portúgal vinsælustu staðirnir

Um 80% aðspurðra fóru í utanlandsferð árið 2019, færri en árið 2018 en þá ferðuðust 83% utan. Um marktækan mun var að ræða. Þeir sem ferðuðust utan gistu að jafnaði 19 nætur á árinu 2019, um einni nótt færri en árið 2018. Spánn (þ.m.t. Kanaríeyjar) og Portúgal voru sem fyrr vinsælasti áfangastaðurinn en þar á eftir komu Bretlandseyjar, Danmörk, Þýskaland, Bandaríkin og Kanada. Færri fóru til Bandaríkjanna og Kanada árið 2019 en árið 2018 og var munurinn marktækur.  

Af þeim sem ferðuðust utan fór um helmingur í borgarferð og um tveir af hverjum fimm í sólarlandaferð. Færri fóru í borgarferð árið 2019 en árið 2018 og var munurinn marktækur. Sama má segja um íþróttaferðir en þeim fækkaði milli ára, að því er kemur fram í niðurstöðum könnunarinnar.

Þingvellir í vetrarbúningi.
Þingvellir í vetrarbúningi. mbl.is/Ómar Óskarsson

Álíka margir ferðuðust innanlands

Um 85% Íslendinga ferðuðust innanlands árið 2019 eða álíka margir og árið 2018. Farnar voru að jafnaði 6,7 ferðir innanlands árið 2019 og dvalið var að jafnaði 14 nætur. Um helmingi gistinótta var varið á Norðurlandi og Suðurlandi. Ekki var marktækur munur á fjölda gistinótta árið 2019 í samanburði við fyrri ár.

Meðmælaskor (NPS) Íslendinga fyrir ferðalög innanlands mældist 34 stig í ársbyrjun 2020, hærra en fyrir. Sundlaugar og jarðböð voru sem fyrr sú afþreying sem flestir greiddu fyrir og ekki var marktækur munur á notkun á afþreyingu sem greitt var fyrir árið 2019 í samanburði við árið 2018. Um helmingur Íslendinga stundaði almenna útiveru einu sinni í viku eða oftar. Hjóla- og fjallahjólaferðum fjölgaði marktækt á milli ára, sem og ferðum í heit og köld böð.

Langflestir sögðust ætla að ferðast

Rúmlega níu af hverjum tíu (94%) Íslendinga hafa áform um ferðalög á árinu 2020. Ríflega helmingur sagðist ætla í sumarbústaðaferð (56,8%), 50,7% í borgarferð erlendis, 44,9% í heimsókn til vina og ættingja innanlands, um 43,8% í sólarlandaferð og um 34,3% í heimsókn til vina og ættingja erlendis. Lítill munur er á ferðaáformum landsmanna frá því fyrir ári nema að færri sögðust ætla í íþróttatengdar ferðir í ár en í fyrra og var munurinn marktækur.

Bent er á að könnunin var gerð áður en áhrif COVID-19 voru orðin jafn mikil og nú er. Vísað er á nýja könnun sem Ferðamálastofa lét gera um áhrif COVID-19 á ferðalög landsmanna og birt var fyrir helgina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert