Aðgerðapakki ríkisstjórnarinnar samþykktur

Frá Alþingi.
Frá Alþingi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Alþingi samþykkti í kvöld sex þingmál sem hljóða upp á tæplega 26 milljarða króna aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirufaraldursins. Allar breytingatillögur stjórnarandstöðunnar voru felldar.

Um er að ræða aukningu upp á um 4,6 milljarða frá því sem gert var ráð fyrir í fyrstu umræðu.

Fyrirferðamest málanna sex sem afgreidd voru í kvöld var bandormurinn svokallaði, frumvarp um ýmsar aðgerðir til að mæta efnahagslegum áhrifum í kjölfar kórónuveirufaraldursins.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, voru á meðal þeirra sem gagnrýndu ríkisstjórnina fyrir að samþykkja ekki breytingatillögurnar. 

Frá atkvæðagreiðslunni í dag. Þingmenn gengu inn í salinn, einn …
Frá atkvæðagreiðslunni í dag. Þingmenn gengu inn í salinn, einn af öðrum, til að greiða atkvæði. Mynd/Skjáskot af vef Alþingis

Stjórn­ar­andstaðan lagði fram sam­eig­in­leg­ar til­lög­ur um 30 millj­arða fram­kvæmd­ir á þessu ári til viðbót­ar við þeim til­lög­um upp á 20 millj­arða sem rík­is­stjórn­in hef­ur kynnt, en breytingatillögur þær voru felldar.

Að lokinni atkvæðagreiðslunni þakkaði Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, þingmönnum og starfsfólki Alþingis, fyrir gott samstarf í dag við að ljúka fyrirliggjandi verki við óvenjulegar aðstæður. Vegna kórónuveirunnar gengu þingmenn inn í salinn einn af öðrum, með að minnsta kosti tvo metra á milli sín, til að greiða atkvæði. 

Mynd/Skjáskot af vef Alþingis
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert