Beint: Blaðamannafundur vegna kórónuveiru

Frá upplýsingafundi vegna kórónuveirunnar.
Frá upplýsingafundi vegna kórónuveirunnar. Ljósmynd/Lögreglan

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn í dag klukkan 14:00 í Skógarhlíð. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Alma D. Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi.

Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins, verður gestur fundarins í dag og mun hún ræða þau fjölmörgu og flóknu verkefni sem Rauði krossinn sinnir í tengslum við COVID-19.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert