Víðavangshlaupi ÍR frestað í annað sinn síðan 1916

Hlaupið er eitt fjölmennasta 5 km hlaup landsins.
Hlaupið er eitt fjölmennasta 5 km hlaup landsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Víðavangshlaupi ÍR, sem í rúma öld hefur farið fram á sumardaginn fyrsta, hefur verið frestað til 4. júní vegna kórónuveirufaraldursins. 

Í tilkynningu vegna málsins segir að ÍR-ingar séu ákaflega stoltir af langri og samfelldri sögu Víðavangshlaups ÍR og að þó að heiti hlaupsins kunni að vera fornt þá viti flestir að hlaupið er eitt fjölmennasta 5 km hlaup landsins, auk þess sem það hafi til fjölmargra ára jafnframt verið Íslandsmeistaramótið í 5 km götuhlaupi.

Í 105 ára sögu hlaupsins hefur það aldrei fallið niður en verður nú í þriðja sinn fært til eða haldið á öðrum degi en sumardaginn fyrsta. Í tilefni af 25 ára afmæli hlaupsins árið 1940 var hlaupið liður í umfangsmiklum hátíðahöldum sem ÍR efndi til á uppstigningardag. Árið 1949 var hlaupinu frestað vegna óhagstæðs veðurs og veikindafaraldurs í Reykjavík. Hlaupið er því í annað sinn fært til vegna veikindafaraldurs!

ÍR-ingar munu sem endranær kappkosta að Víðavangshlaupið fari fram með þeirri reisn sem því og verki frumkvöðlana hæfir en í þetta sinn á björtu júníkvöldi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert