Engin smit á Austurlandi síðustu tvo daga

Engin kórónuveirusmit hafa greinst á Austurlandi síðustu tvo daga. Þau eru því sex talsins sem fyrr. Enginn þeirra smituðu telst alvarlega veikur. Allir eru þeir búsettir á Fljótsdalshéraði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá aðgerðastjórn Austurlands.

Talsvert mörg sýni eru enn til rannsóknar víðsvegar að af landinu sem ekki hefur náðst að greina enn sem komið er, einnig af Austurlandi. Niðurstöðu er beðið.

Hundrað níutíu og átta eru í sóttkví á Austurlandi, tuttugu og átta færri en í gær. Gera má ráð fyrir að fjöldi í sóttkví sveiflist nokkuð næstu daga. Greinist smit í einhverju þeirra fjölda sýna sem þegar eru til rannsóknar má gera ráð fyrir að fjölgun verði í hópi þeirra sem eru í sóttkví. Henni er hins vegar að ljúka hjá mörgum þeirra flugfarþega sem komu frá sýktum svæðum erlendis og leiðir til fækkunar.

Ábendingar og tilmæli frá íbúum hafa borist aðgerðastjórn um að kynna í hvaða sveitarfélagi smit greinast. Það hefur hinsvegar ekki verið gert og þar byggt á mati sóttvarnalæknis meðal annars að slíkar upplýsingar höggvi nærri persónuvernd. Því var lagst gegn því að þær yrðu sendar út.

Þetta mat hefur nú verið endurskoðað af sóttvarnalækni og persónuverndarfulltrúa Landlæknis. Niðurstaðan er sú að það séu hagsmunir almennings að fá sem bestar upplýsingar um stöðu mála hverju sinni og birting þessara upplýsinga er aðgerðastjórn því heimil hér með.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert