„Hæ, hverjir voru hakkaðir. VIГ

mbl.is/​Hari

„Hæ, hverjir voru hakkaðir. VIÐ.“ Þannig hefst færsla á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi eystra þar sem staðfest er að síðan hafi verið hökkuð, en í morgun var nafni hennar breytt í Viral axe.

„Starfsemi okkar er uppskipt að miklu leyti og gríðarlegt álag þessa dagana. Það er búið finna út leiðina að þessu sinni, hvernig þetta gerðist,“ segir í færslunni. 

Þar er fólk jafnframt hvatt til þess að huga vel að ýmsum tölvutengdum öryggisatriðum og slaka ekki á þeim. Þá er þeim þakkað fyrir sem létu lögregluna vita af nafnabreytingunni.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert