Mikill samdráttur í bensínsölu syðra

Bensínnotkun hefur minnkað undanfarið.
Bensínnotkun hefur minnkað undanfarið. mbl.is/Sigurður Bogi

„Umferð á götunum hér í borginni hefur dregist mikið saman og úti á landi sjást varla bílaleigubílar eða rútur,“ segir Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festis sem meðal annars rekur N1.

Samdráttur í sölu á bensíni og díselolíu frá því samkomubann var sett á er á bilinu 10-12%. Áhrifa kórónuveirunnar gætir sums staðar enn ekki jafn sterkt úti á landi og á höfuðborgarsvæðinu, að sögn Eggerts.

Hjá Olís hefur sala á eldsneyti dregist mikið saman, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag. Segir Jón Ólafur Halldórsson forstjóri fyrirtæksins það vera sem spegilmynd af umferðartölum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert