Blaðamannafundur vegna kórónuveiru

Blaðamannafundur vegna kórónuveirunnar. Víðir Reynisson og Þórólfur Guðnason
Blaðamannafundur vegna kórónuveirunnar. Víðir Reynisson og Þórólfur Guðnason Ljósmynd/Lögreglan

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í Skógarhlíð 14. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Alma D. Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi. 

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, verður einnig á fundinum í dag.

Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, verður gestur fundarins í dag. Mikið álag er á stofnuninni um þessar mundir og mun hún koma upplýsingum áleiðis um helstu verkefni og áskoranir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert