Sjö hafa smitast á Austurlandi

Frá Egilsstöðum. Eitt nýtt kórónuveirusmit hefur bæst við á Austurlandi.
Frá Egilsstöðum. Eitt nýtt kórónuveirusmit hefur bæst við á Austurlandi. mbl.is/Sigurður Bogi

Eitt nýtt kórónuveirusmit hefur bæst við á Austurlandi frá í gær og eru þau því orðin sjö talsins. Hinir smituðu eru allir búsettir á Fljótsdalshéraði.

Alls eru 202 í sóttkví, fjórum fleiri en í gær. Talsvert margir þeirra flugfarþega sem komu erlendis frá fyrir hálfum mánuði eða svo eru að ljúka sinni sóttkví. Því má gera ráð fyrir að tölur morgundagsins lækki nokkuð frá deginum í dag, að því er segir í tilkynningu frá aðgerðastjórn á Austurlandi.

Skimun að hefjast á Austurlandi

Íslensk erfðagreining, ÍE, stefnir að því í samstarfi við Heilbrigðisstofnun Austurlands, HSA, að hefja skimun fyrir smiti á Austurlandi með þeim hætti að fólk geti pantað sér tíma í sýnatöku. Það geta allir nema þeir sem eru í sóttkví og börn yngri en eins árs.

Stefnt er á að þetta verkefni verði framkvæmt að óbreyttu laugardaginn fjórða og sunnudaginn fimmta apríl. Bókun í sýnatöku verður ekki í gegnum heilsugæslu HSA heldur með rafrænum hætti á vefsíðu Íslenskrar erfðagreiningar. Skipulagið, þar með talið bókunarleiðbeiningar, verða fljótlega kynntar á heimasíðu sveitarfélaga, á heimasíðu og fésbók HSA og á Austurfrétt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert