Úr sóttkví í friðlýsingu

Guðmundur Ingi Guðbrandsson er laus úr sóttkví.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson er laus úr sóttkví.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur sætt sóttkví undanfarnar tvær vikur. Hann hefur unnið heiman frá sér en losnaði úr sóttkví í dag og nýtti fyrsta daginn á skrifstofunni til þess að friðlýsa háhitasvæði Gjástykkis gegn orkuvinnslu.

Frá þessu greinir Guðmundur Ingi á Facebook.

„Friðlýsingin markar tímamót í friðlýsingum á Íslandi því þetta er fyrsta háhitasvæðið í verndarflokki rammaáætlunar sem er friðlýst,“ skrifar Guðmundur.

Þessi friðlýsing er hluti af sérstöku átaki í friðlýsingum sem ég setti af stað þegar ég varð ráðherra. Gjástykki er sjötta friðlýsingin sem ég geng frá og margar fleiri fram undan. Til dæmis Goðafoss og Geysir!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert