Engin áform um að hætta við próf

Stúdentsefni dimmitera í miðborginni
Stúdentsefni dimmitera í miðborginni mbl.is/​Hari

Til umræðu er nú í Danmörku að fella niður komandi stúdentspróf vegna þess ástands sem skapast hefur í skólamálum í kjölfar útbreiðslu kórónuveiru. Er ástæða þess meðal annars sögð mikið álag á nemendur í fjarkennslu, einkum þá sem standa höllum fæti fyrir.

Kristinn Þorsteinsson, skólameistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ og formaður Skólameistarafélags Íslands, segir engin áform um slíkt hér á landi. Allir framhaldsskólar geri ráð fyrir að ljúka önninni á hefðbundnum tíma með prófi eða mati á stöðu nemenda.

„Skólarnir eru mjög ólíkir, sumir eru með lítil sem engin próf á meðan aðrir eru með mikla prófahefð og þannig verður það áfram,“ segir hann í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag og bætir við að skólastarf sl. vikur hafi „gengið vonum framar“.

Lesa má meira um þetta mál hér á mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert