Hver Íslendingur sóar 90 kg af mat árlega

Íslensk heimili hentu að meðaltali um 20 kg af nýtanlegum …
Íslensk heimili hentu að meðaltali um 20 kg af nýtanlegum mat á ári, 25 kg af ónýtanlegum matarafgöngum, 40 lítrum af drykkjum og 5 kg af matarolíu og fitu á hvern heimilismann. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar Umhverfisstofnunar á umfangi matarsóunar má áætla að hver einstaklingur sói að meðaltali 90 kílóum af mat árlega.

Í tilkynningu frá Umhverfisstofnun segir að Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna hafi áætlað að um þriðjungi framleiddra matvæla sé sóað og að áreiðanleg gögn og rannsóknir séu lykilþáttur í mótvægisaðgerðum.

Á síðastliðnu ári framkvæmdi Umhverfisstofnun ítarlega rannsókn á umfangi matarsóunar á Íslandi, þar sem 90 heimili og 80 fyrirtæki tóku þátt. Niðurstöðurnar sýna að matarsóun íslenskra heimila er sambærileg því sem þekkist í öðrum Evrópulöndum.

Íslensk heimili hentu að meðaltali um 20 kg af nýtanlegum mat á ári, 25 kg af ónýtanlegum matarafgöngum, 40 lítrum af drykkjum og 5 kg af matarolíu og fitu á hvern heimilismann.

Með öðrum orðum er áætlað að íslensk heimili hendi samtals 7.152 tonnum af nýtanlegum mat á ári hverju, um 9.130 tonnum af ónýtanlegum matarafgöngum, 14.670 tonnum af drykkjum og 1.840 tonnum af matarolíu og fitu.

Dræm þátttaka framleiðslufyrirtækja

Niðurstöður fyrirtækjarannsóknarinnar benda til að ríflega 22 kg af nýtanlegum mat, 3,6 kg af ónýtanlegum mat, 14,6 lítrum af drykkjum og 1,6 kg af olíu og fitu sé sóað á hvern íbúa árlega. Dræm þátttaka framleiðslufyrirtækja í rannsókninni gerir það þó að verkum að niðurstöðurnar endurspegla bara neysluhlekk matvælakeðjunnar, þ.e.a.s. heild- og smásölu, veitingasölu og spítala og hjúkrunarheimili.

Tilkynning Umhverfisstofnunar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert