Íslendingur hluti af hópmálsókn í Ischgl

Íslendingur er í hópi um 2.700 ferðamnna sem boðað hafa …
Íslendingur er í hópi um 2.700 ferðamnna sem boðað hafa hópmálsókn gegn ráðamönnum í Tíról í Austurríki. AFP

Íslendingur er í hópi um 2.700 ferðamnna sem boðað hafa hópmálsókn gegn ráðamönnum í Tíról í Austurríki. Þetta staðfestir Peter Kolba, framkvæmdastjóra austurrískra neytendasamtaka, í samtali við mbl.is, en RÚV greindi fyrst frá. Ferðamennirnir sýktust eftir að hafa dvalið á skíðasvæðinu í Ischgl eða nágrenni í febrúar og mars. 

„Augu allra í Evrópu eru á Austurríki og hvernig yfirvöld þar ætla að bregðast við þessum ásökunum. Hagsmunir landsins eru í húfi og gagnsæi borgar sig,“ er haft eftir Kolba í tilkynningu sem austurrískir miðlar fjalla um. Kolba segir í samtali við mbl.is að fleiri Íslendingar bætist í hópinn á næstu dögum þar sem enn á eftir að vinna úr um 700 umsóknum sem samtökunum hafa borist. 

Samkvæmt heimildum Aftonbladet eru 30 Danir, 17 Svíar og 14 Norðmenn meðal þeirra sem hyggjast sækja rétt sinn. 

Ráðamenn í Tíról hafa verið gagn­rýnd­ir fyr­ir að bregðast of seint við og jafn­vel hunsað viðvar­an­ir, meðal ann­ars þær sem komu frá ís­lensk­um heil­brigðis­yf­ir­völd­um. Bær­inn var skil­greind­ur háá­hættu­svæði af ís­lensk­um yf­ir­völd­um 5. mars vegna fjölda Íslend­inga, og raun­ar fleiri Norður­landa­búa, sem greind­ust með kór­ónu­veiru­smit eft­ir að hafa verið þar á skíðum. Yf­ir­völd í Tíról hafa vísað því á bug að þau hafi ekki hlustað á ís­lensk yf­ir­völd. 

Blaðamaður mbl.is ræddi við mann á áttræðisaldri í síðasta mánuði sem var um það bil sá tutt­ug­asti sem greind­ist með kór­ónu­veiruna á Íslandi. Hann segist hafa heyrt af hópmálsókninni en hann hafi ekki leitt hugann að því að sækja rétt sinn og það sama eigi við um fimmmenningana sem hann ferðaðist með. 

Maðurinn er nokkuð viss um að hann hafi smitast af barþjóni á vinsæla skíðabarnum Kitzloch en nú er hafin sakamálarannsókn á því hvort staðurinn hafi reynt að leyna því að barþjóninn hefði greinst með veiruna í lok febrúar. Talið er að hann hafi smitað fjölda manns með því að blása í flautu sem hann bar um háls­inn til að kom­ast að með drykki þegar bar­inn var þétt set­inn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert