Hætta á auknum kvíða og streitu

Ásmundur Einar Daðason, félags og barnamálaráðherra, hefur útdeilt styrkjum til …
Ásmundur Einar Daðason, félags og barnamálaráðherra, hefur útdeilt styrkjum til ýmissa félagasamtaka vegna kórónuveirunnar. mbl.is/Haraldur Jónasson

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur veitt 28 félagasamtökum styrki upp á samtals 55 milljónir króna sem lið í því að auka þjónustu við viðkvæma hópa sem verða fyrir áhrifum vegna COVID-19-faraldursins.

Félagasamtökin sem hljóta styrki eru: Aflið Akureyri, ADHD samtökin, Alzheimersamtökin, Barnaheill, Bergið, Bjarkarhlíð, Bjarmahlíð, Drekaslóð, Fjölskylduhjálp, Foreldrahús, Geðhjálp, Grófin geðverndarmistöð á Akureyri, Heimilisfriður, Hjálparastarf kirkjunnar, Hjálpræðisherinn, Hlutverkasetur, Hugarafl, Höndin, Kvennaathvarfið, Landsamband eldri borgara, Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur, Píeta, Stígamót, Umhyggja – félag langveikra barna , UNICEF, Þroskahjálp og Öryrkjabandalagið.

„COVID-19-faraldurinn hefur raskað lífi fólks um allan heim og nauðsynlegar sóttvarnaraðgerðir hafa, þrátt fyrir mikilvægi sitt, raskað rútínu og stuðningskerfi margra viðkvæmra hópa. Álag og streita sem getur skapast í tengslum við samkomubann, efnahagslegar áskoranir og takmarkaðra aðgengi að stuðningskerfum getur skapað aukna hættu fyrir viðkvæma hópa samfélagsins. Félagasamtökin sem hljóta þessa styrki gegna mikilvægu hlutverki í þjónustu við viðkvæma hópa og markmiðið með styrkveitingunni er að gera samtökin betur í stakk búin til að veita skjólstæðingum sínum stuðning og ráðgjöf,“ segir í fréttatilkynningu.

Ásmundur Einar Daðason, félags-og barnamálaráðherra, segir að kvíði og streita geti aukist í tengslum við samkomubann, efnahagslegar áskoranir og minna aðgengi að stuðnings- og þjónustukerfum, og við vitum að félagasamtök gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki þegar kemur að þjónustu við marga viðkvæma hópa. „Við viljum tryggja það að þau geti haldið sínu góða starfi áfram á þessum krefjandi tímum, enda eru þau mikilvægur hlekkur í keðjunni.”

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert