Landhelgisgæslan sækir hylki til Noregs

TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar.
TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, lenti laust fyrir klukkan fjögur á Gardermoen-flugvelli í Osló og sótti tvö hylki sem eru mikilvæg við sjúkraflutninga COVID-19-smitaðra. Annað hylkið fer á Landspítalann og hitt á sjúkrahúsið á Akureyri.

Viðbragðsaðilar á borð við Landhelgisgæsluna, slökkvilið og Mýflug geta nýtt sér hylkin ef flytja þarf smitaða á sjúkrahús. Hylkjunum er ætlað að auðvelda sjúkraflutninga vegna COVID-19 og draga úr smithættu, að því er Gæslan greinir frá.

Hylkin eru mikilvæg við sjúkraflutninga fólks sem hefur greinst með …
Hylkin eru mikilvæg við sjúkraflutninga fólks sem hefur greinst með kórónuveiruna. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Fram kemur að almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hafi óskað eftir því við Landhelgisgæsluna að áhöfnin á TF-SIF myndi annast flutninginn á hylkjunum frá Noregi til Íslands. TF-SIF tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli í hádeginu og er væntanleg aftur til landsins í kvöld.

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir gott að Landhelgisgæslan geti lagt hönd á plóg við að koma búnaðinum til landsins.

„Það er gott að Landhelgisgæslan geti orðið að liði og nýtt TF-SIF til þessa verkefnis. Ferðin til Osló undirstrikar mikilvægi þess að þjóðin eigi flugvél sem getur nýst þegar flugsamgöngur liggja að mestu niðri og þörf er á að koma neyðarbúnaði hratt og örugglega til landsins,“ segir Georg í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert