Rannsaka andlát konu á Suðurnesjum sem sakamál

mbl.is/Eggert

Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur nú til rannsóknar andlát í heimahúsi þar sem kona á sextugsaldri lést, en andlátið er rannsakað sem sakamál.

Karlmaður á sextugsaldri hefur verið úrskurðarður í gæsluvarðhald til 8. apríl næstkomandi vegna málsins. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þar segir að unnið sé að rannsókn málsins og ekki sé unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert