Stormur, snjókoma og skafrenningur

Kort/Veðurstofa Íslands

Spáð er norðaustanhvassviðri eða -stormi um helgina með snjókomu og skafrenningi í flestum landshlutum. Ferðalög gætu verið varasöm og ferðamenn því hvattir til að kanna vel veðurspár og færð áður en lagt er af stað. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

„Norðaustanstrekkingur nokkuð víða í dag og él á víð og dreif. Líklega þurrt um landið suðvestanvert. Hvessir síðan talsvert á laugardagstormur og jafnvel rok syðst en heldur hægari annað staðar. Áfram þurrt að mestu á Suðvestur- og Vesturlandi, en él í öðrum landshlutum. Frost um allt land.

Dregur svo dálítið úr vindi á laugardagskvöld en síðdegis á sunnudag Fer lægðin loksins að reyna landgöngu og fer yfir landið seint á sunnudag og á mánudag. Hlánar víða á láglendi og lægir í kjölfar skilanna en ekki er um mjög mikil hlýindi að ræða með þessari lægð. Svo taka við rólegri dagar og hiti nálægt frostmarki,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Gul viðvörun er fyrir Suðurland frá því klukkan fimm í fyrramálið og gildir hún til miðnættis. „Austan 15-23 m/s og hviður að 35 m/s undir Eyjafjöllum og austur í Mýrdal. Líkur á snjókomu eða skafrenningi og því gæti skyggni orðið lítið og færð því farið versnandi.“

Á Suðausturlandi tekur gul viðvörun gildi klukkan 10 í fyrramálið og gildir til miðnættis. „Norðaustan 18-25 m/s með hviður að 40 m/s í Öræfum og í Mýrdal. Líkur á snjókomu eða skafrenningi og sums staðar lítið skyggni og versnandi akstursskilyrði.“

Á miðhálendinu er gul viðvörun í gildi frá hádegi á morgun til miðnættis. „Norðaustan 18-25 m/s og snjókoma eða skafrenningur. Ekkert ferðaveður.“

Veðurspá fyrir næstu daga

Norðaustan 5-15 og víða él, hvassast á Vestfjörðum og við S-ströndina í kvöld, en úrkomulítið SV-til.

Hvessir í nótt, norðaustan 15-25 m/s í fyrramálið, hvassast syðst. Yfirleitt hægari NA- og A-lands. Él um mest allt land en úrkomulítið um landið SV-vert.
Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan.

Á laugardag:
Gengur í norðaustan 13-23 m/s, hvassast og snjókoma syðst, en annars víða él og skafrenningur. Frost 0 til 10 stig, minnst við S-ströndina

Á sunnudag:
Norðaustanstormur og snjókoma eða skafrenningur, mest úrkoma S- og A-til. Dregur úr frosti.

Á mánudag:
Norðaustanstormur með hríðarveðri á Vestfjörðum, annars mun hægari austlæg átt og rigning eða slydda með köflum. Suðvestanátt og skúrir eða él SV-til um kvöldið. Hiti 0 til 7 stig, mildast syðst.

Á þriðjudag:
Austlæg átt, snjókoma eða slydda með köflum og hiti nálægt frostamarki.

Á miðvikudag:
Breytilega átt með dálitlum éljum víða um land. Heldur svalara.

Á fimmtudag:
Útlit fyrir suðvestlæga átt með skúrum eða éljum um landið V-vert, en þurrt fyrir austan. Allvíða frostlaust á láglendi að deginum.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert