Sveinspróf verða haldin

Sveinspróf verða að þessu sinni haldin 3-5 vikum eftir annarlok …
Sveinspróf verða að þessu sinni haldin 3-5 vikum eftir annarlok og eigi síðar en 15. september. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Mennta- og menningarmálaráðherra ásamt skólameisturum starfsmenntaskóla og umsýsluaðilum sveinsprófa hafa tekið saman höndum til að finna leiðir svo tryggja megi náms- og próflok hjá þeim sem nú stefna að sveinsprófum, þrátt fyrir tímabundnar lokanir skólabygginga og margra vinnustaða vegna kórónuveirufaraldursins.

Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins.

Sveinspróf verða að þessu sinni haldin 3-5 vikum eftir annarlok og eigi síðar en 15. september. Allir nemendur, sem hyggjast fara í sveinspróf í vor, eru því hvattir til að sækja um hjá umsýsluaðilum sveinsprófa; Iðunni eða Rafmennt.

Þar segir að eftir nokkrar vikur hefjist viðspyrna eftir þrengingar í samfélaginu og þá verði enn ríkari þörf fyrir nýútskrifaða í öllum iðngreinum.

Nemendur eru beðnir að fylgjast vel með þróun mála á heimasíðu skólans síns og umsýsluaðila sveinsprófa. Fundnar verða lausnir við áskorunum hverrar iðngreinar og sveinsprófstakar upplýstir um þær eins fljótt og verða má.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert