Umsóknarfrestur um nám í HR framlengdur

Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur í Háskólann í Reykjavík talsvert.
Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur í Háskólann í Reykjavík talsvert. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Umsóknarfrestur um nám við Háskólann í Reykjavík fyrir haustönn 2020 hefur verið framlengdur. Nýr umsóknarfrestur fyrir grunnnám er 15. júní í stað 5. júní og nýr umsóknarfrestur fyrir framhaldsnám er 20. maí í stað 30. apríl.

„Þessi ákvörðun er tekin í samráði allra háskóla landsins og mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Markmiðið er að koma til móts við þarfi samfélagsins á yfirstandandi óvissutímum og auka og auðvelda aðgengi fólks að háskólamenntun.“ Þetta kemur fram í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert